Jólaballið
Jólaballið var haldið í Ölduselsskóla í dag, mætingin var mjög fín og allir skemmtu sér vel að vanda. Það var dansað í kringum jólatréð og tveir jólasveinar kíktu í heimsókn og gáfu krökkunum nammi.
Ég legg til að þetta verði haldið árlega.
Kveðja,
Linda Rós frænka
Ég legg til að þetta verði haldið árlega.
Kveðja,
Linda Rós frænka

11 Ummæli:
Já þetta var gaman :o)
Ég skal bara taka þetta að mér.
Og það var líka svo fínt að hafa Daníel Snæ í svona góðum höndum allan tímann ;o)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
11. desember 2007 kl. 14:53
Já þetta var alveg frábært og alveg bráðnauðsynlegt að hafa svona skemmtileg tilefni til að hittast:)
Er svo ekki alveg tilvalið að safna saman þeim myndum sem voru teknar á jólaballinu hingað inn? Ég gleymdi því miður myndavél svo ég get ekkert sett inn, en það voru nú einhverjir að taka myndir;)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
11. desember 2007 kl. 22:12
Jú það er góð hugmynd.
Höfundur
Nafnlaus, Þann
11. desember 2007 kl. 23:24
Já, þetta var rosalega gaman og mér líst vel á að þetta verði árlegur viðburður....ekki spurning.....
kv. Ella Bára
Höfundur
Nafnlaus, Þann
14. desember 2007 kl. 22:16
Ég er með 66 myndir af jólaballinu á myndasíðunni minni..... misgóðar samt. Er ekki hægt að kópera þær þaðan?
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. desember 2007 kl. 00:22
Ps. Gleymdi að segja ykkur að mér fannst þetta vel heppnað og gaman að hitta ykkur öll!
Svo er það bara að drífa í að festa endanlega frændsystkinahittinginn - er kannski alveg búið að fastsetja það? Er einhver búinn að hafa samband við Hrafnhildi?
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. desember 2007 kl. 00:24
Ég var að spá hvernig ykkur líst á að hittast á Kárastöðum 29.des með börnin ( á eftir að fá svar frá Lindu og Róbert ;o) )Og ef það verður einhver áhugi svo að hittast um kvöldið ( án barna )þá er ég til í að bjóða ykkur til mín. Þetta er allavega hugmynd. Komið með ykkar skoðanir.
Kveðja Magga
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. desember 2007 kl. 00:45
Þið eruð líka alltaf öll velkomin til mín!!!
En veit að það nennir enginn..... :-( hehe en ég er til í þetta :-)
Kv.
Guðrún
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. desember 2007 kl. 00:49
Legg til að hafa skemmtilegann sumarhitting hjá þér ;o)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. desember 2007 kl. 00:51
Mér líst vel á að hittast 29. á Kárastöðum með börnin....ég mæti með mínar dætur....
kv. Ella Bára
Höfundur
Nafnlaus, Þann
16. desember 2007 kl. 23:59
Linda vilt þú og Róbert ekki bara finna góða dagsetningu sem við getum komið ;o)
Láttu endilega vita hvað dagur hentar ykkur ;o)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
17. desember 2007 kl. 23:29
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim