Kárastaðaættin

7. febrúar 2008

Gönguhópur

Nokkrir Kárastaðaættingjar hittust í Elliðaárdalnum í gær og tóku einn hring. Það var nú ekki mjög fjölmennt en góðmennt. Við vorum fjórar, Guðrún, Kristbjörg (sem kom með hundinn Prins með sér), ég og Magga.

Við ætlum að reyna að gera þetta eitthvað reglulegt og hvetjum alla til að vera með :-)

Kær kveðja,
Linda Rós frænka

7. janúar 2008

Jólahittingurinn

Takk fyrir síðast kæru ættingjar en við hittumst allmörg á Kárastöðum 3. janúar og ákváðum að hafa bara eitthvað einfalt og þægilegt og enduðum á pylsupartýi.

Sjaldséðir gestir voru Hrafnhildur og hennar fjölskylda sem búsett eru í Danmörku. Annars var vel mætt að vanda. Guðrún frænka kom frá Búðardal, ég sagði nú að þó þetta hefði verið haldið á Egilstöðum þá hefði hún samt örugglega komið keyrandi ! Stoppar ekkert Guðrúnu frænku ;)

Kær kveðja,
Linda Rós frænka

5. janúar 2008

Lilja Karen

Í dag var stelpan hennar Ellu Báru frænku skírð og hlaut hún nafnið Lilja Karen.

Til hamingju með nafnið litla frænka.

Kveðja,
Linda Rós frænka

28. desember 2007

Jólahittingur

Kæru ættingjar

Vegna slæmrar veðurspár hefur 30. desember dottið út, kvöldið 3. janúar er kominn inn í staðinn. Hvernig líst ykkur á það ?

Kveðja,
Linda Rós

21. desember 2007

Jólahittingur

Kæru ættingjar

Hvernig hljómar jólahittingur á Kárastöðum, 30. desember næstkomandi ?

Kveðja,
Linda Rós

8. desember 2007

Jólaballið

Jólaballið var haldið í Ölduselsskóla í dag, mætingin var mjög fín og allir skemmtu sér vel að vanda. Það var dansað í kringum jólatréð og tveir jólasveinar kíktu í heimsókn og gáfu krökkunum nammi.

Ég legg til að þetta verði haldið árlega.

Kveðja,
Linda Rós frænka

4. nóvember 2007

Nýr ættarmeðlimur

Hún Ella Bára eignaðist stelpu í dag 4. nóvember 2007.

Til hamingju með það frænka.

Kveðja,
Linda Rós frænka