Kárastaðaættin

15. ágúst 2006

Fréttir

Ætli ég byrji ekki og vona að aðrir fylgi í kjölfarið. Ætli það viti ekki flestir þetta um mig en kannski ekki allir ;)

Ég er enn ógift og barnlaus ;) Bý í Garðabænum með honum Bjössa mínum og við eigum bráðum 6 ára afmæli. Ég er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og vinn sem kerfisstjóri á lögmannsstofu. Við skötuhjú vorum að kaupa okkur sumarbústað í Miðfellslandi og eru allir hvattir til að kíkja í heimsókn ;)

Kveðja,
Linda Rós

Aðgangur

Ég er búin að senda póst á öll systkinin og þau munu vonandi stofna aðgang að þessum vef og láta afkvæmi sín hafa ;)

Gætuð t.d haft Display nafn: Helgafjölskylda eða eitthvað þannig ;)

Linda Rós

14. ágúst 2006

Tenglar

Ég er búin að setja inn fullt af tenglum, ef þið viljið taka út eða bæta við tengla, hafið þá samband við mig og ég græja þetta.

Linda Rós

Hugdetta

Mér datt í hug að búa til svona heimasíðu fyrir okkur í Kárastaðaættinni. Hafði þetta mjög einfalt því ég er ekkert viss um hvernig undirtekt þetta fær en ef þetta verður eitthvað vinsælt þá mun ég gera þetta eitthvað betra. Jafnvel færa þetta yfir í það kerfi sem ég nota persónulega og kaupa domain (t.d karastadaaett.com) en fannst þa alveg óþarfa vesen ef það gerist ekkert meira en þessi eina færsla mín ;)

Hafið samband við mig (eða hvern þann sem er þegar kominn með aðgang) kæru ættingjar til að fá aðgang að þessu ;)

Linda Rós